Ferill 1022. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1487  —  1022. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um vefinn opnirreikningar.is.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hvaða stofnanir ríkisins birta ekki fjárhagsupplýsingar á vefnum opnirreikningar.is og hvers vegna ekki, sundurliðað eftir stofnun?
     2.      Stendur til að þessar stofnanir, ef einhverjar eru, taki þátt í verkefninu á komandi misserum?


Skriflegt svar óskast.